Ég eyddi síðustu helgi í algerri afslöppun hjá mömmu, Íris systur og Patreki litla á Eyrarbakka. Það var alveg dásamlegt
Það gerðist svo sem ekki margt fyrir utan framleiðslu á framúrskarandi graskerspæi (a la Ruth), óteljandi leiki, fettur og hlátur með honum Patreki litla; heimsókn Lindu, Moiru og Douglas og tvær stuttar ferðir á Selfoss. Nema svo var bankað eitt kvöldið þegar við sátum að snæðingi og okkur boðið að kaupa "Neyðarkallinn". Íris systir reið á vaðið og fjárfesti samviskusamlega í einum kalli og til þess að vera ekki minni konur ákváðum við hinar, ég, Ruth og mamma að kaupa hver sinn kall.
Það flaug í gegnum huga minn hvað þetta væri eitthvað staðlað slagorð: "Neyðarkall". " Eru engar konur í þessum björgunarsveitum?" hugsaði ég. Ég veit að karlmenn eru í meirihluta og að það átti trúlegast líka að höfða til útkallanna í nafninu, en mér fannst þetta allt voða karllægt eitthvað og pínu pirrandi að hunsa svona framlag kvenna til björgunarstarfa .
En mikið var mér komið skemmtilega á óvart þegar ég dró pínulitla björgunarkonu upp úr bóluplastinu. Frábært!!! Það er bara jákvætt þegar jafnréttið birtist svona í skemmtilegum smáatriðum líka. Miklu ferskara heldur en stöðluð og pikkföst gamaldags birtingarform sem stundum virðist ekki mega hrófla við.
Áfram björgunarfólk, konur og menn!!!
Athugasemdir
Já ég var svo sannarlega sæl með að neyðarkallinn var kona í ár Neyðarkall heimilisins hangir nú á úlpu heimasætunnar
Dísa Dóra, 6.11.2007 kl. 22:28
Fyndið- það fór í taugarnar á mér að það skyldi vera kona- en það er önnur saga... :O)- prinsessupissan fékk lyklakippuna- ég "jafnréttið "- fórum að sofa ...
Þórdís tinna, 7.11.2007 kl. 00:57
Já, þetta var góð helgi. Nema ég sá eftir því að hafa horft á draugamyndirnar á netinu.....var myrkfælin í 4-5 daga etir á og þorði ekki að vera ein eftir vakandi á kvöldin.
Íris Ásdísardóttir, 13.11.2007 kl. 17:14
Sæl Thelma mín... langaði bara að kasta á þig kveðju. Hitti Ingibjörgu K í gær og það var svo yndislegt að sjá hana aftur. Hugsa oft til ykkar allra.
Vona að þú eigir góða helgi mín kæra.
Sigurlaug Lára (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 15:41
Hæ, gettu hver er mætt á bloggið! :) Ekki byrjuð enn samt en get núna allavega komið með hinar ýmsustu sniðugu athugasemdir hérna. Mjög nauðsynlegur og kærkominn áfangi þar sem mér finnst nú mjög gaman að hafa skoðanir á hlutunum!
Björg Ásdísardóttir, 18.11.2007 kl. 22:42
Daginn ... langaði bara að nefna þetta með neyðarkallinn ... það er víst til eftir farandi frasi sem notaður er af björgunarsveitunum ,,Þetta er neyðarkall..." - svo þaðan kemur orðið neyðarkallinn (sem ætti að vera neyðarkarlinn, ef þetta er karl)
María, 19.11.2007 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.