Gellurnar í 10-11

Ég sá hluta af frétt nýlega, var sjálf á hlaupum og missti af byrjun fréttarinnar og veit ekki af hverju það var verið að tala um þetta, enda skiptir það kannski ekki öllu máli. En umræðan var um ungt fólk sem starfar í verslun og þjónustu.
Iðulega koma bæði sjónarmiðin upp, þ.e. annars vegar að unga fólkið sé ekkert verra starfsfólk, einhverstaðar þurfi krakkarnir að hafa möguleika á að byrja sína göngu í atvinnulífinu, þetta hafi forvarnargildi fyrir þau og geti stuðlað að því að krakkar endi ekki í óreglu og bulli og svo framvegis. Hins vegar er talað um hversu óþolandi það sé að viðskiptavinir fái ekki almennilega þjónustu og að sjoppu mórallinn sé óþolandi, sem sumir vilja meina að fylgji "ungum vinnustöðum".
Ég er eiginlega sammála þessu öllu. Ég á sjálf 19 ára gamlan strák og ég tel að það hefði verið ömurlegt fyrir hann að fá hvergi vinnu, en af því það eru svo margir sem fagna ungu og ódýrara vinnuafli, þá hefur hann aldrei verið í vandræðum með að fá atvinnu.
Sem viðskiptavinur finnst mér þetta hins vegar stundum alveg óþolandi. Ég sakna stundum almennrar reynslu og kunnáttu sem aldur gefur, en þetta er ekki í boði á vinnustöðum þar sem eingöngu krakkar eru að starfa á. Ég meina flest af þeim eru auðvitað alveg yndisleg, kurteis og flott, en ég sakna þess að oft getur engin svarað spurningum manns. Hér kemur lítið dæmi:
Ég í 10-11 að versla fyrir snjalla hugmynd að máltíð sem ég hafði fengið og ég spyr afgreiðslustúlkuna: Eru til gellur?
Hún: Ha?????
Ég: Eru til gellur
Hún: Ha gellur?
Ég: Já gellur
Hún fer að flissa og kallar í nálæga stúlku sem var líka að vinna í búðinni og segir við hana: Þessi kona vil kaupa gellur, ha ha ha...
Stúlka #2: Gellur!!!!
Stúlka #1: Já hún segir það
Ég sá að það var alveg ljóst að þær höfðu enga hugmynd um hvað gellur voru svo að ég spurði þær kurteislega hvort þær gætu spurt einhvern sem vissi hvað gellur væru. Þær sögðust ætla að ná í verslunarstjórann og ég beið þolinmóð, kíkti í frystinn á meðan í þeirri von að ég fyndi þar frystar gellur. Og svo kemur verslunarstjórinn, krúttlegur strákur, kannski 18-20 ára. Örlítið rauður í framan með búttaðar kinnar. Hann fann greinilega pínulítið til sín, reyndi að setja í brýnnar og ætlaði sér örugglega að vera ábúðarfullur, enda frekar mikilvægt að vera kallaður svona fram.
Ég endurtók spurningu mína um gellurnar og drengurinn setti upp sinn strangasta svip og sagði með næstum því fullorðnisrödd: Það eru engar gellur hér, stelpurnar hér eru sko ekki kallaðar gellur og ef þú ætlar að vera með einhvern dónaskap....að þá hérna...að þá sko...
Ég brosti þolinmóð og útskýrði fyrir þeim að gellur væru hluti af fiskhausum og að ég hafi ætlað að kaupa þetta í kvöldmatinn, að ég hafi ekki verið með neinn dónatón. Þau gláptu á mig eins og ég væri geimvera og ég sá að þetta var vita tilgangslaust. Ég nennti þessu ekki lengur, fór og keypti fiskibollur í dós frá Ora og bjó til bleika sósu með.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Frekar skondin saga, en svo ótrúlega sönn.  Hef upplifað svipað, en finnst þetta fyndið!!!  Ekta Thelma að 'lenda' í svona ;)

Hvenær ætlarðu að koma í kaffi???????

kærleikur,
S.

SigrúnSveitó, 22.8.2007 kl. 19:16

2 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Ó hvað þessi saga lýsir ástandinu. Ég gleymi heldur ekki sögunni þinni þegar netið hjá þér datt út og þú hrigdir í Vodafone og stúlkan ráðlagði þér að fara inná netið til að fá leiðbeiningar p.s. sástu smassið mitt í gær. Ef þú kemst láttu mig endilega vita

Kristján Kristjánsson, 22.8.2007 kl. 19:56

3 identicon

hahahhaha,,,,,,, þetta er lýsandi dæmi sem þú nefnir og hverju orði sannara, enda vilja þeir hjá 10-11 ekki vera með fullorðið fólk, því það hefur skoðanir á hlutunum líka.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 21:03

4 Smámynd: Grumpa

þú hefur ekki spurt um bjúgaldin og loðber í leiðinni?

Grumpa, 22.8.2007 kl. 21:32

5 identicon

Hrein og klár snilld þessi saga en að vissu leyti svolítið sorgleg.    mamma mín fékk einu sinni þau svör þegar hún í sakleysi spurði í kjörbúðinni hvort ekki væru til aðrir sveppir , leist ekki á blettótta flúðasveppina í kassanum.

" þessir sveppir eru alveg nýir, þeir verða bara svolítið skítugir þegar þeir er grafnir upp úr moldinni "  Móðir mín þakkaði fyrir sig og fór út ÁN þess að kaupa nýju moldugu sveppina !  

Birgitta (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 21:52

6 Smámynd: Garún

Ég lenti í því einu sinni að spyrja um maí baunir og krakkarnir þrír sem voru á vakt í Nettó voru ekki með hugmynd um hvað maís baunir voru.  Ég hélt að ég væri í falinni myndavél ég átti ekki til orð.  Þá kom kona um fertugt (annar kúnni) brosti skilningsrík til krakkanna og sagði að ég væri örugglega að biðja um gular baunir.  "aaaaahhh ok ekki málið" svöruðu þau og bentu mér á hilluna með maísbaunum.   

Garún, 22.8.2007 kl. 22:48

7 Smámynd: Hugarfluga

*fliss* góð! Man eftir pistli frá Illuga Jökulssyni í útvarpinu, þar sem hann sagði frá reynslu sinni í búð nokkurri.  Hann var að kaupa grænmeti og ávexti og unglingurinn á kassanum þurfti að fletta upp hverju einasta stykki í "myndabókinni". Á endanum varð Illuga nóg boðið þegar unglingurinn lyfti upp epli og sagði "Hvað er þetta?". 

Hugarfluga, 23.8.2007 kl. 09:45

8 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Þetta var nú ferlega fyndið!!!  Langt síðan ég hef hlegið yfir færslu.  Sorrý ef þér finnst það slæmt  

Hummm... og hvernig verða börnin þeirra ef okkar kynslóð tókst ekki betur upp???  

Samt ekki vonalust. Sögurnar sem ég heyri frá Vodafone eru þannig að þegar fullorðið fólk hringir þangað inn vegna netvandamála, að þá er best að spyrja það að því hvort draslið sé tengt við rafmagn. 

Sennilega er þetta bara allt í lagi. Við erum skrítin í þeirra augum og þau í okkar, að meðaltali er það þá bara fínt

Eða er það ekki?

Guðrún Þorleifs, 23.8.2007 kl. 10:00

9 Smámynd: Lovísa

Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst þetta frekar skondið

Nú er ég 24 ára og mér finnst ég oft gömul þegar ég fer í sumar verslanir. Það er stundum eins og maður sé að tala annað tungumál. 

Lovísa , 23.8.2007 kl. 11:01

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Herjum á 10-11 þangað til þau læra hvað gellur eru! Þetta var dásamleg færsla hjá þér, takkk!

Guðríður Haraldsdóttir, 23.8.2007 kl. 22:40

11 Smámynd: Linda Ásdísardóttir

Hver elur upp þessi börn sem eru að vinna í verslunum... bara spyr. Hér úti á landi eru allir farnir að verka fisk og slátra heima fyrir fermingu.

Linda Ásdísardóttir, 24.8.2007 kl. 00:12

12 Smámynd: Guðný Linda Óladóttir

hehehehe

frábær saga

Guðný Linda Óladóttir, 24.8.2007 kl. 14:43

13 Smámynd: Svava S. Steinars

Skemmtileg saga   Krakkarnir í þessum búðum eru stundum alveg úti á þekju, mörg þeirra þekkja ekki einu sinni algengt grænmeti, t.d. brokkolí.  Btw, dóttir mín er frænka þín

Svava S. Steinars, 24.8.2007 kl. 15:28

14 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Dásamleg saga! 

Rannveig Lena Gísladóttir, 30.8.2007 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband